nr5@nr5.is

848-1515

Tinnuskarð 1

Tinnuskarð 1a merkt 0102, samtals 201,8 fm glæsilegt og vel hannað parhús á pöllum. Íbúðarhlutinn er 166,7 fm og innbyggður bílskúr 35,1fm.

Mjög góð staðsetning í Skarðshlíðinni. Húsið er hannað af Sigurði Hafsteinssyni hjá Vektor.

Húsið er staðsteypt aukin lofthæð er í húsinu og er það einstaklega vel skipulagt. Húsið skilast tilbúið að utan og fokhelt að innan ásamt grófjafnaðri lóð samkvæmt skilalýsingu.

Húsið er á 2 pöllum og er gengið inn á neðri pall og eru nokkrar tröppur upp á efri pall. Innangengt er í bílskúr. Góð lofthæð er í stofum og eldhúsi.

Útveggir eru einangraðir að utan og verða klæddir með plötuklæðningu eða báruáli. Gluggar verða álklæddir timburgluggar. Svalahandrið verður stál eða álgrind klædd reyklituðu öryggisgleri. Sjá nánar í skilalýsingu.

Eignir

HúsnæðiHæðStærðBílskúrVerð
1A1166,735,1Selt

Myndir